Staðsetning og svipur
Horfðu beint í myndavélina með hlutlausum svip.
Þú verður að horfa beint framan í myndavélina. Höfuðið má ekki halla eða snúa. Svipurinn á andlitinu verður að vera hlutlaus, sem þýðir að munnurinn á að vera lokaður og þú mátt ekki brosa.
Augun eiga að vera opin og sýnileg. Gættu þess að hárið hylji ekki augun eða hluta af andlitinu. Andlitið á að fylla út 70-80% af myndfletinum, frá höku upp í hvirfil.
